Bikarmeistararnir mæta Íslandsmeisturunum

Selfoss er ríkjandi bikarmeistari.
Selfoss er ríkjandi bikarmeistari. mbl.is/Árni Sæberg

Dregið var í átta liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í fótbolta í dag. Stórleikur átta liða úrslitanna fer fram á Selfossi þar sem bikarmeistarar Selfoss og Íslandsmeistarar Vals eigast við. 

KR, sem mætti Selfossi í úrslitum á síðasta ári, mætir FH á útivelli. Tvö Lengjudeildarlið eru eftir í keppninni og fá þau verðug verkefni; ÍA fær stórlið Breiðablik í heimsókn og Haukar heimsækja Þór/KA á Akureyri. 

Átta liða úrslitin: 

Þór/KA - Haukar

FH - KR

ÍA - Breiðablik

Selfoss - Valur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert