Evrópumeistararnir gera breytingu

Christian Prokop, landsliðsþjálfari Þjóðverja.
Christian Prokop, landsliðsþjálfari Þjóðverja. AFP

Evrópumeistarar Þjóðverja hafa gert breytingu á leikmannahópi sínum fyrir leikinn gegn Makedóníu á Evrópumótinu í handknattleik en þjóðirnar eigast við í lokaumferð riðlakeppninnar á morgun.

Christian Prokop, landsliðsþjálfari Þjóðverja, hefur kallað á Finn Lemke inn í hópinn í stað línumannsins Bastian Roscheck. Lemke lék stórt hlutverk með Þjóðverjum undir stjórn Dags Sigurðssonar þegar þeir urðu Evrópumeistarar í Póllandi fyrir tveimur árum en var ekki valinn í hópinn sem spilaði tvo fyrstu leikina.

Makedónía er efst í C-riðlinum með 4 stig, Þýskaland 3, Slóvenía 1 og Svartfjallaland rekur lestina með 0 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert