Varnarmaðurinn reyndi Sylvain Distin missir af hinum mikilvæga leik Everton gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn en Everton er í hörðum slag við Arsenal um sæti í Meistaradeild Evrópu.
Distin fór meiddur af velli í hálfleik á páskadag vegna tognunar í læri þegar Everton sigraði Manchester United 2:0 og Roberto Martínez knattspyrnustjóri félagsins sagði á fréttamannafundi í morgun að Frakkinn væri úr leik í bili. Erfitt væri að meta enn sem komið er hvort hann myndi missa af fleiri leikjum.
Þetta er áfall fyrir Everton sem einnig sér á bak Kevin Mirallas en hann missir af síðustu þremur leikjum liðsins eftir að hafa meiðst í nára í sama leik.