Sterling biðst undan að fara í æfingaferðina

Raheem Sterling.
Raheem Sterling. AFP

Raheem Sterling, leikmaður Liverpool, hefur tjáð knattspyrnustjóranum Brendan Rodgers að hann sé ekki í standi til að fara með liðinu í æfingaferð til Ástralíu og Asíu.

Enska blaðið Mirror greinir frá þessu í kvöld en þessar fregnir ýta undir það að leikmaðurinn sé á leið til Manchester City. Sterling hefur eins og fram hefur komið neitað að skrifa undir nýjan samning og eru forráðamenn Manchester City ólmir að fá leikmanninn til liðs við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert