Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason er í byrjunarliði Aston Villa sem sækir Newcastle heim í ensku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld.
Aston Villa freistar þess að vinna sinn fyrsta sigur í deildinni í ár en liðið hefur aðeins náð að krækja í eitt stig á árinu 2017 og er með versta árangur allra liða í deildinni.