Góðar fréttir fyrir Hull

Oumar Niasse, til vinstri, fagnar marki með Hull.
Oumar Niasse, til vinstri, fagnar marki með Hull. AFP

Hull City sem berst fyrir lífi sínu í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu varð ágengt í áfrýjun rauða spjaldsins sem Oumar Niasse fékk að líta í viðureign Hull og Watford í deildinni um síðustu helgi.

Hull áfrýjaði rauða spjaldinu til aganefndar enska knattspyrnusambandsins og það hefur nú verið fellt niður og sleppur Niasse við að taka út þriggja leikja bann sem beið hans.

Hull er í fjórða neðsta sæti deildarinnar, er tveimur stigum á undan Gylfa Þór Sigurðssyni og samherjum hans í Swansea.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert