Sakho gæti hafa slitið krossband

Mamadou Sakho.
Mamadou Sakho. AFP

Mamadou Sakho varnarmaðurinn sterki hjá Crystal Palace meiddist illa á hné í leiknum gegn Tottenham í kvöld og var borinn af velli í seinni hálfleik.

Líklegt er að Sakho spili ekki meira með á tímabilinu en ekki er búið að greina meiðslin til hlítar. Menn óttast að hann hafi slitið krossband en Sakho, sem er í láni frá Liverpool, hefur leikið sérlega vel í harta varnar Crystapl Palace.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert