Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson var að venju í byrjunarliði Cardiff sem mátti sætta sig við tap gegn Newcastle í ensku b-deildinni í kvöld.
Newcastle sem er í mikilli baráttu um sæti í úrvalsdeildinni næsta vetur sigraði 2:0 og náði þeirra stöðu eftir 65 mínútur. Markalaust var að loknum fyrri hálfleik en Christian Atsu skoraði á 55. mínútu og Isaac Hayden bætti við tíu mínútum siðar.
Newcastle er með 91 stig í 2. sæti eftir 45 leiki. Cardiff er í 13. sæti með 59 stig.