Chelsea ætlar að bjóða í Chamberlain

Alex Oxlade-Chamberlain.
Alex Oxlade-Chamberlain. AFP

Englandsmeistarar Chelsea ætla að gera Arsenal tilboð í enska landsliðsmanninn Alex Oxlade-Chamberlain á næstu dögum en frá þessu greina enskir fjölmiðlar í kvöld.

Alex Oxlade-Chamberlain er sagður hafa hafnað tilboði frá Arsenal að gera nýjan samning en kantmaðurinn á eitt ár eftir af samningi sínum við Lundúnaliðið.

Liverpool hefur leikið haft augastað á enska landsliðsmanninum en hefur ekki gert tilboð í leikmanninn enn sem komið er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert