Gylfi ákvað ásamt þjálfurum að spila ekki í dag

Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson mun ekki leika með enska úrvalsdeildarliðinu Swansea í dag í æfingaleik liðsins við Birmingham.

Á heimasíðu Swansea segir að Gylfi Þór muni ekki spila vegna óvissu um framtíð hans hjá félaginu en Swansea hefur hafnað tveimur tilboðum frá Everton í íslenska landsliðsmanninn en það síðara hljóðaði upp á 45 milljónir punda. Swansea vill 50 milljónir fyrir Gylfa.

Í færslu á heimasíðu Swansea í morgun kemur fram að Gylfi Þór hafi tekið ákvörðunina ásamt forráðamönnum félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert