Jóhann Berg í byrjunarliði Burnley

Jóhann Berg byrjar með Burnley í dag.
Jóhann Berg byrjar með Burnley í dag. AFP

Knattspyrnumaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson er í byrjunarliði Burnley þegar liðið mætir West Bromwich Albion í annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag á Turf Moor. Jóhann Berg er leikmaður íslenska landsliðsins, en hann lék alla leiki Íslands á EM í Frakklandi síðasta sumar.

Burnley birti byrjunarliðið á Twitter-síðu sinni rétt í þessu. Leikurinn byrjar kl. 14:00 en fylgst verður með helstu tíðindum hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert