Leikur með uppeldisfélaginu til 2020

Kyle Walker-Peters skrifaði undir þriggja ára samning við uppeldisfélagið.
Kyle Walker-Peters skrifaði undir þriggja ára samning við uppeldisfélagið. Ljósmynd/Tottenham

Varnarmaður Tottenham, Kyle Walker-Peters, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið. Kappinn lék með yngri liðum félagsins sem og undir 18, 19 og 20 ára landsliðum Englands, en hann er tvítugur að aldri.

„Ég gekk til liðs við félagið þegar ég var ekki orðinn 11 ára svo það er mjög sérstakt að fá að vera hérna svona lengi og að alast upp á Tottenham-svæðinu og að styðja klúbbinn,“ sagði Walker-Peters í samtali við BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert