Meiðslavandræði hjá Liverpool

Dejan Lovren glímir við meiðsli.
Dejan Lovren glímir við meiðsli. AFP

Liverpool og Leicester eigast við öðru sinni í þessari viku þegar þau mætast á King Power-vellinum í Leicester á laugardaginn.

Liðin áttust við í deildabikarnum á sama stað í fyrrakvöld þar sem Leicester hafði betur, 2:0, og tryggði sér sæti í 16-liða úrslitunum.

Eins og mönnum hefur verið tíðrætt um hefur varnarleikurinn verið mikill höfuðverkur hjá Liverpool-liðinu og líklegt er að liðið geti ekki teflt fram sínu aðalmiðvarðapari á laugardaginn. Dejan Lovren og Joel Matip glíma við meiðsli og sömu sögu er að segja um hinn varnarsinnaða miðjumann Emre Can. Enginn af þeim þremur spilaði í fyrrakvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert