Jón Dagur enn og aftur með fallegt mark

Jón Dagur í leik með varaliði Fulham.
Jón Dagur í leik með varaliði Fulham. Ljósmynd/Twitter-síða Fulham

Knattspyrnumaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson skoraði áttunda markið sitt fyrir varalið Fulham á leiktíðinni er hann jafnaði í 1:1 gegn Stoke á útivelli á laugardaginn var. 

Jón Dagur fékk boltann rétt utan teigs, sótti að varnarmanni og lét vaða með góðum árangri. HK-ingurinn hefur látið vel að sér kveða þegar kemur að því að skora falleg mörk og er hann reglulegur gestur er Fulham kýs mark mánaðarins í hverjum mánuði. 

Fulham er í 6. sæti með 23 stig eftir 17 leiki í næstefstu deild varaliðsdeildarinnar á Englandi. Markið hjá Jóni Degi má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert