Reynir að fá Mbappé til Liverpool

Fabinho væri til í að sjá Mbappé hjá Liverpool.
Fabinho væri til í að sjá Mbappé hjá Liverpool. AFP

Brasilíumaðurinn Fabinho gekk á dögunum í raðir Liverpool frá Mónakó. Hann segist ætla að sannfæra Kylian Mbappé, stórstjörnu PSG og franska landsliðsins, um ganga í raðir enska félagsins.

Fabinho og Mbappé voru samherjar hjá Mónakó á sínum tíma og urðu þeir m.a franskir meistarar árið 2017. Í kjölfarið var Mbappé keyptur til PSG og eftir fínt tímabil, sló hann í gegn með Frökkum á HM í Rússlandi. 

„Mbappé hefur sagst ætla vera áfram hjá PSG en hægt og rólega mun ég reyna sannfæra hann um að koma til Liverpool," sagði Fabinho í samtali við Sky Sports

„Hann óskaði mér til hamingju með félagsskiptin en ég hef því miður ekki haft tíma til að óska honum til hamingju með heimsmeistaratitilinn. Hann var rosalega góður á HM og hann er búinn að gera ótrúlega hluti á stuttum tíma í fótbolta," sagði hann enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert