Sigur í fyrsta leik hjá Sarri

Leikmenn Chelsea fagna sigurmarkinu.
Leikmenn Chelsea fagna sigurmarkinu. AFP

Chelsea hafði betur gegn Perth Glory, 1:0, er liðin mættust í Perth í Ástralíu í nótt. Leikurinn var sá fyrsti hjá Chelsea á undirbúningstímabilinu og sá fyrsti síðan Maurizio Sarri tók stjórn liðsins af Antonio Conte. 

Pedro Rodríguez skoraði sigurmarkið strax á fimmtu mínútu. Sarri gerði svo átta skiptingar og datt þá botninn úr spili liðsins. Jorginho lék sinn fyrsta leik fyrir Chelsea og samkvæmt Sky Sports var hann maður leiksins. 

David Luiz var svo í byrjunarliði Chelsea en hann fékk lítið að spila á síðustu leiktíð. Ross Barkley komst næst því að bæta við marki en hann skaut í stöng snemma í síðari hálfleik. Næsti leikur Chelsea er á móti Inter í Bandaríkjunum á laugardaginn kemur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert