Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool gerir sér grein fyrir því að hans menn eiga í vændum erfiða leiki gegn þýsku meisturunum í Bayern München en liðin mætast í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Fyrri leikurinn fer fram á Anfield þriðjudaginn 19. febrúar og síðari leikurinn verður á Allianz Arena miðvikudaginn 13. mars.
„Það var vitað mál að við fengjum erfiða mótherja á þessu stigi keppninnar og Bayern München er svo sannarlega topplið.
Það verður gaman fyrir mig að fara til Þýskalands og ég veit að þetta verður erfitt verkefni en ég hlakka til þess. Við höfum góðan tíma til að undirbúa okkur og vonandi munum við hafa alla leikmenn klára þegar að þessum leikjum kemur,“ sagði Klopp.