Mourinho: Hef ekkert að segja (myndskeið)

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

José Mourinho vildi ekkert tjá sig um brottreksturinn frá Manchester United þegar fréttamaður Sky reyndi að fá eitthvað upp úr honum í dag.

Mourinho fékk reisupassann í gær eftir tvö og hálft ár í starfi hjá Manchester-liðinu, sem í dag réð svo Norðmanninn Ole Gunnar Solskjær til að stýra liðinu út leiktíðina.

„Ég hef ekkert að segja. Þú þekkir mig. Ef þú vilt ganga með mér, förum þá til Battersea. Það er ekkert vandamál fyrir mig. Ég hef ekkert að segja, bless,“ sagði Mourinho við fréttamanninn en myndskeið frá samtali þeirra má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert