City vann samanlagt 10:0

Sergio Agüero skoraði sigurmarkið í kvöld.
Sergio Agüero skoraði sigurmarkið í kvöld. AFP

Manchester City lét sér nægja að vinna Burton 1:0 þegar liðin áttust við í síðari viðureign liðanna í undanúrslitum ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld.

Manchester City, sem á titil að verja, vann því rimmuna samanlagt 10:0 og mætir sigurvegaranum í viðureign Chelsea og Tottenham sem eigast við á Stamford Bridge annað kvöld en Tottenham vann fyrri leikinn 1:0. Úrslitaleikurinn fer fram á Wembley 24. febrúar.

Argentínumaðurinn Sergio Agüero skoraði eina mark leiksins á 26. mínútu eftir sendingu frá Alsíringnum Riyad Mahrez en Pep Guardiola stjóri Manchester-liðsins gaf mörgum leikmönnum sem lítið hafa fengið að spreyta sig á leiktíðinni tækifæri í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert