Matic og Lindelöf á heimleið

Nemanja Matic.
Nemanja Matic. AFP

Tveir leikmanna Manchester United eru á leið heim til Manchester og munu ekki spila með landsliðum sínum. Þar eru á ferðinni Nemanja Matic og Victor Lindelöf. Þá hefur Romelu Lukaku verið sendur í myndatöku í herbúðum Belga. 

Meiðsli þeirra Matic og Lukaku hafa ekki verið útskýrt nákæmlega á blaðamannafundum hjá Serbíu og Belgíu en báðir hafa þeir glímt við meiðsli að undanförnu. 

Lukaku mun hafa farið í myndatöku en ekki hefur verið fjallað um niðurstöðuna. Matic er nýbyrjaður að beita sér á ný eftir meiðsli og þar gæti hafa orðið bakslag.

Þá hefur Victor Lindelöf einnig ákveðið að leika ekki með Svíum gegn Rúmeníu og Noregi af persónulegum ástæðum.

Belgía tekur á móti Rússlandi í undankeppni EM annað kvöld og Serbía heimsækir Þýskaland í vináttulandsleik í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert