Everton vill kaupa Zouma

Kurt Zouma veifar til stuðningsmanna Everton eftir síðasta heimaleikinn í …
Kurt Zouma veifar til stuðningsmanna Everton eftir síðasta heimaleikinn í ensku úrvalsdeildinni í vor. AFP

Everton vill kaupa miðvörðinn Kurt Zouma frá Chelsea en Frakkinn var að láni hjá Everton á síðustu leiktíð og átti góðu gengi að fagna með liðinu.

Zouma, sem er 24 ára gamall, er sagður vilja halda kyrru fyrir hjá Everton en hann fékk fá tækifæri hjá Chelsea áður en hann fór til Everton-liðsins.

Það er í höndum nýs knattspyrnustjóra Chelsea að samþykkja sölu Zouma til Everton en líklegt er að Frank Lampard verði ráðinn næsti stjóri Chelsea á næstu dögum.

Everton gæti þurft að greiða allt að 30 milljónir punda fyrir Zouma en í vikunni gekk Everton frá kaupum á portúgalska miðjumanninum André Gomes frá Barcelona fyrir 22 milljónir punda. Hann lék sem lánsmaður með Everton á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert