Á leið í læknisskoðun hjá Newcastle

Joelinton er að ganga til liðs við Newcastle fyrir 40 …
Joelinton er að ganga til liðs við Newcastle fyrir 40 milljónir punda. Ljósmynd/@thespcetoview

Enska knattspyrnufélagið Newcastle er að ganga frá kaupunum á brasilíska framherjanum Joelinton en það er Sky Sports sem greinir frá þessu. Framherjinn mun gangast undir læknisskoðun hjá Newcastle í dag og svo skrifa undir samning í framhaldi af því.

Þessi 22 ára gamli leikmaður kemur til Newcastle frá þýska 1. deildarliðinu Hoffeinheim en Newcastle þarf að borga 40 milljónir punda fyrir hann og verður hann dýrasti leikmaður í sögu félagsins.

Joelinton átti fínt tímabil með Hoffenheim á síðustu leiktíð en hann skoraði sjö mörk og lagði upp önnur fimm í 25 byrjunarliðsleikjum í þýsku 1. deildinni. Hann er uppalinn hjá Sport Recife í Brasilíu en gekk til liðs við Hoffenheim árið 2015.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert