Önnur stúkan tóm á næsta heimaleik Emils og félaga

Emil í leiknum gegn AC Milan um síðustu helgi.
Emil í leiknum gegn AC Milan um síðustu helgi. AFP

Emil Hallfreðsson og félagar hans í ítalska liðinu Hellas Verona spila næsta heimaleik án áhorfenda í annarri stúkunni.

Stuðningsmenn Verona hafa verið fundnir sekir um að beita Ganamanninn Sulley Muntari leikmann AC Milan kynþáttarníði í leik liðanna um síðustu helgi. Auk þess að spila næsta heimaleik sinn í deildinni með aðra stúkuna tóma þarf Verona að greiða 50 þúsund evrur í sekt. Sú upphæð nemur tæpum 7,7 milljónum króna.

Næsti heimaleikur Verona í deildinni er á móti Lazio þann 30. þessa mánaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert