Pogba snýr mögulega aftur gegn Real

Paul Pogba.
Paul Pogba. AFP

Franski miðjumaðurinn Paul Pogba gæti náð síðari undanúrslitaviðureigninni Juventus gegn Real Madrid en hann hefur verið frá vegna meiðsla síðan 18. mars. 

„Við erum að gera allt sem við mögulega getum til þess að fá hann aftur fyrir síðari undanúrslitaviðureignina,“ sagði Massimiliano Allegri þjálfari Juventus.

Fyrri leikur liðanna fer fram 5. maí en síðari leikurinn á Spáni þann 13. maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert