Tap hjá Lampard í fyrsta leiknum

Frank Lampard.
Frank Lampard. AFP

Frank Lampard lék í kvöld sinn fyrsta leik í bandarísku MLS-deildinni þegar lið hans, New York City beið lægri hlut fyrir Montreal Impact, 3:2.

Lampard kom inná í seinni hálfleik en náði ekki að setja mark sitt á leikinn en hann gekk í raðir New York City í júlí á síðasta ári en var síðan lánaður til Manchester City.

David Villa og Thomas McNamara skoruðu mörk New York City en Ignacio Piatti skoraði tvö mörk fyrir Montreal Impact eftir að Dominic Oduro hafði náð hafði komið liðinu í 1:0 eftir sex mínútna leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert