Boateng komst ekki í gegnum læknisskoðun

Kevin Prince Boateng.
Kevin Prince Boateng. AFP

Kevin-Prince Boateng mun að öllum líkindum ekki ganga til liðs við Sporting Lissabon frá Schalke eftir að leikmaðurinn komst ekki í gegnum læknisskoðun.

Boateng, sem er 28 ára gamall, hefur glímt við hnémeiðsli síðustu ár og úrskurður læknateymis Sporting var að hann myndi aldrei ná sér fullkomlega af meiðslunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert