Kolbeinn fær nýjan liðsfélaga

Nigel de Jong í leik með hollenska landsliðinu.
Nigel de Jong í leik með hollenska landsliðinu. AFP

Kolbeinn Sigþórsson gekk til liðs við tyrkneska félagið Galatasaray í gær og íslenski landsliðsframherjinn fékk rétt í þessu nýjan liðsfélaga þegar hollenski miðjumaðurinn Nigel de Jong færði sig um set til félagsins frá bandaríska liðinu LA Galaxy. 

Nigel de Jong hefur áður leikið með Ajax, Hamburger SV, Manchester City og AC Milan á ferli sínum, en auk þess hefur hann leikið 81 landsleik fyrir hollenska landsliðið. Nigel de Jong hittir fyrir Wesley Sneijder, samlanda sinn, hjá Galatasaray. 


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert