Hafði betur gegn Messi og Ronaldo

Antoine Griezmann.
Antoine Griezmann. AFP

Frakkinn Antoine Griezmann, leikmaður Atlético Madrid, var í kvöld útnefndur besti leikmaður spænsku 1. deildarinnar tímabilið 2015-16 og skaut þar með mönnum eins og Lionel Messi og Cristiano Ronaldo ref fyrir rass.

Diego Simeone, þjálfari Atlético Madrid, var valinn þjálfari tímabilsins, Messi var valinn besti sóknarmaðurinn, Jan Oblak úr Atletíco Madrid besti markvörðurinn, Diego Godin úr Atlético Madrid besti varnarmaðurinn og Luka Modric úr Real Madrid var valinn besti miðjumaðurinn.

Auk þess að vera valinn besti leikmaðurinn var Griezmann valinn bestur af stuðningsmönnum og Luis Suárez, framherji Barcelona, var valinn besti útlendingurinn.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert