Sjötta tap læriveina Ólafs í röð

Ólafur H. Kristjánsson.
Ólafur H. Kristjánsson. mbl.is/Ómar Óskarsson

Það gengur hvorki né rekur hjá lærisveinum Ólafs Helga Kristjánssonar í liði Randers í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Liðið tapaði í kvöld á heimavelli fyrir Midtjylland, 2:0.

Þetta var sjötta tap Randers í röð og fjórði leikurinn í röð sem liðinu tekst ekki að skora en landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson stóð á milli stanganna í kvöld hjá Randers-liðinu.

Randers er er í fimmta sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert