Eiður Smári Guðjohnsen tjáði sig á Twitter-síðu sinni í kvöld um það þegar leikur Fram og Breiðabliks var flautaður af vegna veðurs.
Eftir 70 mínútna leik var leikurinn flautaður af vegna gríðarlegrar ofankomu og storms, en í fréttinni sem sjá má hér að ofan er myndskeið af aðstæðunum.
„Erum við eitthvað að linast? Spilið áfram,“ skrifar Eiður Smári á Twitter við myndskeið af atvikinu.
Are we getting soft?? Play on...💨🙄 https://t.co/VxJh35DoAG
— Eidur Gudjohnsen (@Eidur22Official) March 23, 2017