Barcelona og Saint-Etienne sektuð

Sergi Roberto og Luis Enrique fallast í faðma í kjölfar …
Sergi Roberto og Luis Enrique fallast í faðma í kjölfar ótrúlegs sigurs Barcelona gegn PSG í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. AFP

Ótrúlegur sigur Barcelona í seinni leik liðsins gegn Paris Saint-Germain í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Nou Camp fyrr í þessum mánuði hefur dregið dilk á eftir sér.

Stuðningsmenn Barcelona ruddust inn á völlinn og tóku þátt í fagnaðarlátum leikmanna og forráðamanna liðsins í kjölfar þess að Sergi Roberto tryggði liðinu sæti í átta liða úrslitum keppninnar með marki sínu á lokaandartökum leiksins. Barcelona var sektað af UEFA um 16.000 evrur vegna þeirrar háttsemi stuðningsmanna liðsins

Þá sektaði UEFA Saint-Etienne um 43.000 evrur vegna slæmrar hegðunar stuðningsmanna liðsins á meðan á leik liðsins gegn Manchester United í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar stóð á Old Trafford í febrúar síðastliðnum. Stuðningsmenn Saint-Etienne kveiktu á blysum í stúkunni og köstuðu ýmsu lauslegu inn á völlinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert