Gunnar Heiðar skráður í lið Norðmanna

Gunnar Heiðar Þorvaldsson í leik með Eyjamönnum.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson í leik með Eyjamönnum. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Eitthvað hafa þeir verið utan við sig þeir sem skrifa á vef Skysports því Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson er sagður hafa verið í byrjunarliði Norðmanna í tapi þeirra gegn Norður-Írum í undankeppni HM í knattspyrnu í gærkvöld.

Á leikskýrslu Skysports er Gunnar Heiðar skráður númer 9 í liði Norðmanna en það rétta er að Alexander Söderlund, fyrrverandi leikmaður FH, lék í treyju númer 9 í liði Norðmanna og var skipt af velli á 63. mínútu.

Hér má sjá leikskýrslu Skysports

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert