Þrír öflugir ekki með Real Madrid í kvöld

Cristiano Ronaldo verður ekki með Real Madrid í kvöld.
Cristiano Ronaldo verður ekki með Real Madrid í kvöld. AFP

Cristiano Ronaldo verður hvíldur í liði Real Madrid þegar liðið sækir Deportivo La Coruna í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Real Madrid leikur því án þriggja öflugra leikmanna í kvöld en leikurinn fer fram á heimavelli Deportivo. Gareth Bale á við meiðsli að stríða og spilar ekki og þá tekur fyrirliðinn Sergio Ramos út leikbann sem hann var úrskurðaður í fyrir rauða spjaldið sem hann fékk að líta fyrir brotið á Lionel Messi í El Clásico um síðustu helgi.

Real Madrid og Barcelona eru í hörðum slag um meistaratitilinn. Bæði lið hafa 75 stig en Real Madrid á leik til góða. Barcelona verður einnig í eldlínunni í kvöld en Börsungar taka á móti Osasuna á Camp Nou.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert