Landsliðsframherjinn Viðar Örn Kjartansson skoraði sitt 18. deildarmark fyrir Maccabi Tel Aviv í ísraelsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld þegar hann skoraði mark liðsins í 2:1-tapi fyrir Hapoel í úrslitakeppninni þar í landi.
Viðar Örn skoraði þá eftir laglegan samleik við Yossi Benayoun eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði, en auk markanna 18 í deildinni skoraði hann fimm í bikarnum og er því búinn að skora 23 mörk fyrir liðið á tímabilinu.
Maccabi er í öðru sætinu í úrslitakeppninni en Hapoel tryggði sér titilinn með sigrinum í gær.