Dramatískt tap hjá Tottenham

Harry Kane reynir skot að marki Roma í nótt.
Harry Kane reynir skot að marki Roma í nótt. AFP

Það vantaði ekki dramatíkina þegar Tottenham og ítalska liðið Roma mættust í æfingaleik í New Jersey í Bandaríkjunum í nótt en þar hafði Roma betur, 3:2.

Staðan var 1:0 fyrir Roma í hálfleik efir mark Diego Perotti úr vítaspyrnu. Þegar tuttugu mínútur voru eftir tvöfaldaði Cengiz Ünder forskot Roma, en þá tók Tottenham við sér. Harry Winks minnkaði muninn á 87. mínútu og á fyrstu mínútu uppbótartíma jafnaði Vincent Janssen metin.

En mínútu síðar skoraði Marco Tumminello sigurmark Roma á annarri mínútu uppbótartímans og lokatölur 3:2 fyrir Roma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert