Stjörnukona hættir með landsliðinu

Gemma Fay í leik með Skotum á EM.
Gemma Fay í leik með Skotum á EM. AFP

Gemma Fay, markmaður kvennaliðs Stjörnunnar í knattspyrnu, er hætt að leika með landsliði Skotlands. Hin 35 ára gamla Fay hefur leikið 203 landsleiki fyrir þjóð sína og er hún sú leikjahæsta frá upphafi. 

Hún varði mark liðsins á EM í Hollandi í sumar og segir hún það vera fullkominn endi á landsliðsferlinum. 

„Mér fannst rétt að hætta með landsliðinu eftir EM. Að vera fyrirliði liðsins í mörg ár er mjög þýðingamikið fyrir mig,“ sagði hún í samtali við BBC. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert