Fer í læknisskoðun hjá Watford í dag

André Carrillo er að fara á lán til Watford.
André Carrillo er að fara á lán til Watford. Ljósmynd/AFP

Knattspyrnumaðurinn Andre Carillo fer í læknisskoðun hjá Watford í dag, þar sem til stendur að kappinn fari á lán út tímabilið frá Benfica. Marco Silva er stjóri Watford en hann þekkir Carillo vel þar sem þeir voru báðir hjá Sporting Lisbon áður en Carillo hélt til erkifjendanna í Benfica.

Watford er með leyfi fyrir leikmanninn, en hann var aðeins þrisvar sinnum í byrjunarliði Benfica á síðustu leiktíð.

Andre Carillo er 26 ára gamall og er frá Perú og leikur með landsliðinu. Hann leikur í stöðu hægri kantmanns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert