Albert Guðmundsson lagði upp eitt af mörkum aðalliðs PSV þegar liðið vann öruggan sigur gegn Putten, 4:0, á útivelli í 64-liða úrslitum hollensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld.
Framherjinn stórefnilegi kom inn á á 64. mínútu leiksins og stundarfjórðungi síðar lagði hann upp fjórða og síðasta mark sinna manna.
Albert, sem er 20 ára gamall og fyrirliði U21 árs landsliðsins, hefur komið við sögu í einum deildarleik með PSV á leiktíðinni.