Enginn bikarúrslitaleikur hjá Birni

Björn Bergmann Sigurðarson.
Björn Bergmann Sigurðarson. Ljósmynd/Molde

Það verður enginn bikarúrslitaleikur hjá þeim Birni Bergmann og Óttari Magnúsi Karlssyni í liði Molde þetta árið.

Molde steinlá fyrir Lilleström á heimavelli í undanúrslitunum í kvöld, 3:0. Björg Bergmann lék allan tímann fyrir Molde en Óttar Magnús var ekki í leikmannahópnum hjá Ole Gunnari Solskjær. Björn varð bikarmeistari með Molde fyrir þremur árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert