Djurgården vann Íslendingaslaginn

Guðbjörg Gunnarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir
Guðbjörg Gunnarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir mbl.is/Golli

Guðbjörg Gunnarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir léku báðar allan leikinn fyrir Djurgården sem hafði betur gegn Limhamn Bunkeflo, 2:1. Anna Björk Kristinsdóttir spilaði allan leikinn fyrir Bunkeflo. 

Mia Jalkerud skoraði bæði mörk Djurgården og Eveliina Parikka mark Bunkeflo. Djurgården er í 4. sæti með 26 stig og Bunkeflo í 6. sæti með 20 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert