Kjartan Henry skoraði í sigri

Kjartan Henry Finnbogason
Kjartan Henry Finnbogason Ljósmynd/Horsens

Kjartan Henry Finnbogason skoraði seinna mark Horsens sem vann Helsingør, 2:0, á heimavelli sínum í dönsku A-deildinni í knattspyrnu í dag. 

Markið er sennilega með þeim skrautlegri sem Kjartan hefur skorað en varnarmaður þrumaði boltanum í framherjann og þaðan fór hann í bláhornið. 

Horsens er í fimmta sæti deildarinnar eftir tíu leiki með 16 stig og hefur Kjartan skorað tvö mörk til þessa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert