Zidane kjörinn þjálfari ársins

Zinedine Zidane tók við verðlaununum frá Claudio Ranieri sem vann …
Zinedine Zidane tók við verðlaununum frá Claudio Ranieri sem vann þau í fyrra. AFP

Zinedine Zidane, knattspyrnustjóri Evrópumeistara Real Madrid, var valinn besti þjálfari ársins 2017 í karlaflokki á verðlaunakvöldi FIFA í Lundúnum í kvöld.

Zidane stýrði Real til sigurs í spænsku 1. deildinni og einnig í Meistaradeild Evrópu, annað árið í röð. Aðrir sem voru tilnefndir eru Antonio Conte, stjóri Chelsea, og Massimiliano Allegri, stjóri Juventus.

Þá fékk Oliver Giroud, framherji Arsenal, hin svokölluðu Puskas-verðlaun fyrir besta mark ársins þegar hann skoraði með magnaðri hælspyrnu gegn Crystal Palace.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert