Árni Vilhjálmsson er fallinn með félagi sínu Jönköping Södra niður í sænsku B-deildina í knattspyrnu eftir að hafa tapað umspilseinvígi við Trelleborg samanlagt 3:1.
Jönköping hafnaði í þriðja neðsta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar og þurfti liðið því að fara í einvígi við Trelleborg sem hafnaði í þriðja sæti B-deildarinnar um hvort liðið yrði í efstu deild að ári. Trelleborg vann fyrri leikinn 2:1 og eftir að liðin gerðu 1:1-jafntefli í dag var ljóst að þau hafa sætaskipti milli deilda.
Árni Vilhjálmsson var ónotaður varamaður hjá Jönköping í dag, en hann skoraði eitt mark á sínu fyrsta tímabili í sænsku úrvalsdeildinni í ár.