Eggert tók þátt í sögulegum sigri

Eggert Gunnþór Jónsson í búningi SønderjyskE.
Eggert Gunnþór Jónsson í búningi SønderjyskE.

Eggert Gunnþór Jónsson tók þátt í því að brjóta blað í sögu félags síns SønderjyskE þegar liðið vann 3:0 sigur á FC Kaupmannahöfn í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Eggert Gunnþór spilaði allan leikinn fyrir SønderjyskE, en um er að ræða fyrsta sigur liðsins gegn FCK í sögu dönsku úrvalsdeildarinnar.

SønderjyskE komst með sigrinum upp í 9. sæti deildarinnar með 18 stig eftir 16 leiki en FCK er í 6. sætinu með 22 stig. Brøndby er á toppnum með 33 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert