Albert Guðmundsson skoraði í gær einu sinni sem oftar fyrir varalið PSV í hollensku B-deildinni í knattspyrnu þegar liðið vann Utrecht 2:0.
Albert skoraði þarna sitt 18. mark í síðustu 18 leikjum með liðinu, en eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði var markið einkar laglegt þar sem hann lék á markvörð andstæðinganna.
Albert hefur verið í hópnum með aðalliði PSV í flestum leikjum þess í hollensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og hefur komið við sögu í þremur þeirra.
🔥 | Jong @PSV won vanavond met 2-0 van Jong FC Utrecht.
— FOX Sports (@FOXSportsnl) November 20, 2017
Albert Gudmundsson scoorde op zeer fraaie wijze! pic.twitter.com/mc27HhwmRQ