Fékk rautt og skallaði hurð (myndskeið)

Lukasz Teodorczyk reynir hér að skalla bolta, ekki hurð eins …
Lukasz Teodorczyk reynir hér að skalla bolta, ekki hurð eins og á sunnudaginn. AFP

Pólski framherjinn Lukasz Teodorczyk var hundóánægður eftir að hafa verið rekinn af velli fyrir leikaraskap í leik með Anderlecht gegn Charleroi í belgísku A-deildinni í knattspyrnu á sunnudaginn.

Teodorczyk fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir að láta sig falla innan teigs í von um að krækja í vítaspyrnu. Hann strunsaði af velli og þegar hann kom að búningsklefa Ancerlecht-liðsins tók hann óánægju sína út á hurð klefans, sem hann skallaði eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert