Staðfestur leikur gegn Mexíkó

Heimir Hallgrímsson, Helgi Kolviðsson og Guðmundur Hreiðarsson
Heimir Hallgrímsson, Helgi Kolviðsson og Guðmundur Hreiðarsson mbl.is/Golli

KSÍ staðfestir á vef sínum í dag að karlandsliðið mæti Mexíkó í vináttuleik sem fram fer á Levi's leikvanginum í  San Francisco, heimavelli ruðningsliðsins San Francisco 49ers, þann 23. mars.

Áður hafði KSÍ staðfest leik gegn Perú sem verður spilaður þann 27. mars á Red Bull Arena leikvanginum í New Jersey.

Ísland og Mexíkó hafa þrisvar mæst áður í vináttulandsleikjum, öll skiptin einmitt í Bandaríkjunum.  Fyrst mættust liðin árið 2003 í Phoenix (0:0), næst 2010 í Charlotte (0:0) og loks í Las Vegas í fyrra, þar sem Mexíkó vann 1:0 sigur, fyrir framan mesta áhorfendafjölda sem sótt hefur knattspyrnuleik í Las Vegas.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert