Höfum ekki játað okkur sigraða

Federico Fazio horfir á Mohamed Salah skora annað mark sitt …
Federico Fazio horfir á Mohamed Salah skora annað mark sitt í leiknum. AFP

Federico Fazio varnarmaður ítalska liðsins Roma heitir því að liðið muni gera allt sem það getur til að slá Liverpool út í Meistaradeildinni þrátt fyrir 5:2 tap í fyrri leik liðanna í undanúrslitunum.

Roma tapaði 4:1 fyrir Barcelona í fyrri viðureign liðanna á Camp Nou í átta liða úrslitunum en tókst að vinna 3:0 heimasigur í seinni leiknum og komast þar með í undanúrslitin. Nú þurfa Rómverjar að treysta á annað kraftaverk.

„Við reynum alltaf að hugsa jákvætt. Við erum baráttumenn og við munum gefa gjörsamlega allt í seinni leikinn fram á síðustu sekúndu. Við höfum ekki játað okkur sigraða og með hjálp okkar stuðningsmanna munum við reyna að snúa þessu okkur í hag. Við erum með frábært lið. Við erum komnir þetta langt og við viljum fara lengra,“ sagði Fazio

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert