Hjörtur í bikarúrslitin

Hjörtur Hermannsson í landsleik. Hann gæti unnið tvöfalt í Danmörku.
Hjörtur Hermannsson í landsleik. Hann gæti unnið tvöfalt í Danmörku. AFP

Hjörtur Hermannsson og samherjar hans í Brøndby eru komnir í úrslitaleik dönsku bikarkeppninnar í knattspyrnu eftir sigur á Midtjylland, 3:1, á heimavelli í dag.

Hjörtur lék allan leikinn með Brøndby sem mætir Silkeborg í úrslitaleiknum 10. maí.

Kamil Wilczek og Teemu Pukki komu Brøndby í 2:0 en Gustav Wikheim minnkaði muninn fyrir Midtjylland. Wilczek skoraði aftur um miðjan síðari hálfleik og tryggði sigurinn.

Brøndby og Midtjylland heyja jafnframt einvígi um danska meistaratitilinn í lokaumferðunum í vor og þar eru Hjörtur og félagar með fimm stiga forskot þegar fimm umferðum er ólokið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert