Lopetegui framlengdi við Spánverja

Julen Lopetegui landsliðsþjálfari Spánar í knattspyrnu.
Julen Lopetegui landsliðsþjálfari Spánar í knattspyrnu. AFP

Julen Lopetegui, landsliðsþjálfari Spánverja í knattspyrnu, hefur framlengt samning sinn við spænska knattspyrnusambandið.

Samningur Lopetegui gildir nú til ársins 2020 en áður en hann tók við þjálfun A-landsliðsins stýrði hann yngri landsliðum Spánverja með góðum árangri og þá var hann þjálfari spænska liðsins Rayo Vallecano og Porto í Portúgal.

Spænska landsliðið er taplaust í 18 leikjum undir stjórn Lopetegui en það hefur unnið 13 leiki og gert 5 jafntefli og þeir eru margir sem spá því að Spánverjar berjist um heimsmeistaratitilinn á HM í Rússlandi sem hefst í næsta mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert